Fjöldamörg fyrirtæki, innlend og erlend, bjóða þér að nýta Vildarpunktana til að kaupa vörur þeirra eða þjónustu. Hér finnur þú upplýsingar um hvernig nota má Vildarpunkta, hvaða möguleikar eru í boði, hversu marga Vildarpunkta þarf til og nánari leiðbeiningar um hvernig og hvar þú átt að bóka.
Með Punktum og peningum getur þú notað Vildarpunkta sem greiðslu fyrir flug til allra áfangastaða Icelandair, ýmist að fullu eða að hluta með því að blanda saman punktum og annarri greiðsluleið. Þú safnar punktum fyrir ferðina, þó að ferðin sé greidd að fullu með punktum. Njóttu Vildarpunktanna þinna og láttu drauminn um ferðalagið út í heim rætast!
Nú eru Punktar og peningar í boði hjá Air Iceland Connect.
Saga Club félagar geta nú greitt með Punktum og peningum í nýrri bókunarvél hjá Air Iceland Connect fyrir öll flugfargjöld innanlands og til Grænlands í stað sérstakra Vildarfargjalda sem voru í boði áður.
Með Punktum og peningum geta félagar nýtt sér Vildarpunkta sem greiðslu fyrir öll almenn fargjöld á vef Air Iceland Connect. Félagar geta greitt fyrir fargjald, eldsneyti, skatta og gjöld til allra áfangastaða Air Iceland Connect, ýmist að fullu eða að hluta til með því að blanda saman Vildarpunktum og annarri greiðsluleið. Félagar safna einnig Vildarpunktum þegar bókað er með punktum, hér eru frekar upplýsingar um söfnun Vildarpunkta og Kortastiga fyrir bókanir hjá Air Iceland Connect.
Þetta er svona einfalt:
Athugið að ekki er í boði að bóka börn í gegnum vefinn sem ferðast ein og því ekki hægt að bjóða upp á greiðslu með Vildarpunktum þegar það á við.
Hér eru upplýsingar um Vildarfargjöld sem var hægt að bóka hjá Air Iceland Connect til 4. janúar 2019.
Þegar þú ert um borð í vélum Icelandair þá getur þú greitt með Vildarpunktum fyrir vörur eða mat. Þú velur þér mat eða drykk af matseðli og flettir í gegnum glæsilegt úrvalið í Saga Shop Collection og greiðir með Vildarpunktunum þínum.
1. Þú lætur áhafnarmeðlim vita að þú viljir greiða með Vildarpunktum.
2. Þú framvísar Sagakorti og kreditkorti eða debetkorti. Sami eigandi verður að vera að báðum kortum.
3. Þú berð ábyrgð á að eiga næga Vildarpunkta fyrir kaupunum.
4. Ekki er hægt að bakfæra greiðslu/breyta um greiðslumáta eftir að flugi er lokið.
Hér getur þú lesið nánar um Skilmála Icelandair Saga Club
Saga Club félagar geta bókað hótelgistingu með Vildarpunktum hvar sem er í heiminum í gegnum hótelleit Icelandair sem er í boði Voyage.
Bókaðu með Vildarpunktum og safnaðu um leið:
Ef breyta þarf bókun eða spurningar koma upp, vinsamlegast hafið samband við Voyage.
Saga Club félagar geta bóka bílaleigubílinn með Vildarpunktum hvar sem er í heimum í gegnum bílaleiguleit Icelandair sem er í boði Voyage. Bílaleiguleitin bíður upp á bílaleigur á öllum áfangastöðum Icelandair, sem og í flestum borgum um heim allan.
Bókaðu með Vildarpunktum og safnaðu um leið:
Ef breyta þarf bókun eða spurningar koma upp, vinsamlegast hafið samband við Voyage.
Saga Club félagar geta notað Vildarpunkta til að uppfæra sæti og þjónustu frá Economy Flex yfir á Saga Premium. Vinsamlegast athugið að skilmálar fargjaldsins sem greitt var fyrir og punktasöfnun breytast ekki.
Eingöngu er hægt að uppfæra farseðla, sem eru Icelandair farseðlar og með númeri sem byrjar á 108.
Svona uppfærir þú fyrir Vildarpunkta
1. Bókaðu Economy Flex fargjald.
2. Passaðu að þú eigir næga Vildarpunkta fyrir uppfærslunni.
3. Hafðu samband við Þjónustuver Icelandair og bókaðu uppfærslu fyrir Vildarpunkta.
| Vildarpunktar fyrir uppfærslu: Önnur leið | Frá Economy Flex á Saga Premium |
|---|---|
| Evrópa til Íslands | 20,000 |
| N-Ameríka til Íslands | 53,000 |
| N-Ameríka til Evrópu | 73,000 |
| Vildarpunktar fyrir uppfærslu: báðar leiðir | Frá Economy Flex á Saga Premium |
|---|---|
| Evrópa til Íslands | 40,000 |
| N-Ameríka til Íslands | 106,000 |
| N-Ameríka til Evrópu | 146,000 |
Það sem þú þarft að vita:
Meira rými getur skipt sköpum og þess vegna er til boða að nota Vildarpunkta til að kaupa sæti með Meira fótarými.
Það einasta sem þarf að athuga er hvort þú hefur nægilega Vildarpunkta inni á Saga Club reikningnum þínum.
Sæti með Meira fótarými fyrir Vildarpunkta.
| Sæti | Eiginleiki | Á milli Íslands og Evrópu | Á milli Íslands og Norður Ameríku |
|---|---|---|---|
| Fremst | Fremst í farrýminu. Meira en 86 cm sætabil. Hallanleg. Rafmagnsinnstunga. | 5,000 | 10,800 |
| Hallanleg sæti við neyðarútgang | Að minnsta kosti 96 cm sætabil. Hallanleg. | 5,000 | 10,800 |
| Sæti við neyðarútgang með takmörkuðum möguleika á að halla | Að minnsta kosti 91 cm sætabil. Ekki hægt að halla þeim mikið eða yfirhöfuð. | 5,000 | 10,800 |
Að nota Vildarpunkta er einfalt
Vinsamlegast hafa í huga að félagar fá ekki Vildarpunkta þegar greitt er með Vildarpunktum fyrir sæti með Meira fótarými. Ekki hægt er að kaupa sæti með Vildarpunktum fyrir flug.
Frábær viðbót við fríðindi Saga Club eru Saga Club gjafabréfin. Þú getur keypt gjafabréf fyrir Vildarpunkta og gefið vinum og vandamönnum gjafabréfið eða nýtt það til dæmis upp í pakkaferðir með Icelandair.
Punktagjafabréfin er hægt að kaupa fyrir punkta inn á Saga Club reikningnum þínum, hægt er að skrá sig inn hér í hægra horninu á síðunni.
Eitt mikilvægasta framlag viðskiptavina Icelandair til Vildarbarna eru Vildarpunktar. Vildarpunktar sem viðskiptavinir gefa eru notaðir til þess að greiða flugfarseðla fyrir börnin og fjölskyldur þeirra.
Saga Club félagar geta gefið ótakmarkaða upphæð í formi Vildarpunkta í Vildarbarnasjóð Icelandair. Þannig gefa þeir langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður tækifæri á að komast í draumaferðalagið sitt.
Sjóðurinn er fjármagnaður með stofnframlagi Icelandair, framlögum frá Saga Club félögum og afgangsmynt frá farþegum Icelandair. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag. Til að sækja um styrk frá Vildarbörnum skal fylla út umsókn á vefnum.
Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Við síðustu úthlutanir hafa margar fjölskyldur valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.vildarborn.is.
Félagar í Saga Club geta gefið ótakmarkaða upphæð Vildarpunkta til Vildarbarna á hverju ári. Til að gefa Vildarpunkta á vefnum þurfa félagar að skrá sig inn á Saga Club reikninginn sinn, með notendanafni og lykilorði og smella á gefa framlag til Vildarbarna.
Saga Club félagar geta keypt, gefið eða millifært Vildarpunkta í gegnum Saga Club reikninginn sinn.
Hver félagi getur keypt allt að 150.000 Vildarpunkta á ári hverju. Ekki er hægt að kaupa fleiri en 100.000 Vildarpunkta í einu. Ef þig vantar ákveðinn fjölda Vildarpunkta inn á reikninginn þinn, til dæmis fyrir bílaleigubíl eða hótelgistingu, þá er þetta rétta leiðin fyrir þig.
Ert þú að leita að gjöf fyrir vin eða ættingja? Hver félagi getur keypt allt að 150.000 Vildarpunkta á ári hverju. Ekki er hægt að kaupa fleiri en 100.000 Vildarpunkta í einu. Vildarpunktagjöf er kjörin fyrir ferðalanginn í fjölskyldunni þinni.
Hægt að deila Vildarpunktum með fjölskyldu og vinum! Félagar í Saga Club geta millifært af reikningi sínum yfir á reikning annars Saga Club félaga.
Á vefsíðunni Points.com geturðu notað Vildarpunktana þína í gjafabréf frá fyrirtækjum á borð við Amazon. Þar geturðu líka millifært punkta sem þú hefur unnið þér inn hjá öðrum flugfélögum inn á Saga Club reikninginn þinn.
Icelandair Saga Club félagar geta notað Vildarpunktana sína í Vildarferðir með Alaska Airlines. Félagar í Alaska Mileage Plan geta einnig notað mílurnar sínar til þess að bóka flug með Icelandair. þær ferðir eru bókaðar hjá Alaska Airlines.
Til þess að bóka ferð fyrir Vildarpunkta með Alaska Airlines hringja Saga Club félagar inn í Þjónustuver Icelandair í síma 50 50 100.
| Flugleiðir | Economy r/t W-class | First r/t - A-class |
| Innan Bandaríkjanna og til Kanada | 30.000 Vildarpunktar | 60.000 Vildarpunktar |
| Til Hawaii, Mexíkó og Kosta Ríka | 60.000 Vildarpunktar | 120.000 Vildarpunktar |
Saga Club félagar geta notað Vildarpunkta hjá VITA til þess að greiða niður valdar ferðir í leiguflugi þar sem flogið er með Icelandair. Hægt er að nota 15.000 Vildarpunkta upp í ferð sem jafngildir 10.000 kr. greiðslu inn á ferðina. Notkunin gildir einu sinni fyrir hvern viðskiptavin í bókun.
Icelandair Saga Club er í samstarfi við fyrirtækið Points.com sem býður upp á fullt af frábærum leiðum til þess að nýta Vildarpunkta.
Það eina sem Saga Club félagar þurfa að gera er að skrá sig sem félaga inni á síðum Points.com og þá opnast heill heimur af punktamöguleikum.
Skráning á Points.com
Hægt er kaupa Gjafabréf á Points.com fyrir að hámarki 280.000 Vildarpunkta á ári og takmarkast hver kaup við 70.000 Vildarpunkta.
Athugið að með notkun á þjónustu hjá Points.com samþykkir notandi þær reglur og skilmála sem Points.com setur.
Korthafar Mastercard World Elite gátu áunnið sér réttindi á Vinamiða uppfylli hann skilyrði bankans um veltu og greiðslu árgjalds til 31. janúar 2019, sem sagt fyrir veltu 2018. Uppfylli korthafi skilyrðin fær hann Vinamiða sem hann getur nýtt næst þegar hann kaupir sér Vildarferð með Icelandair.
Vinamiði gefur korthafa rétt á að bjóða ferðafélaga með sér þegar hann kaupir sér sjálfur vildarmiða, eins lengi og þeir ferðast saman að minnsta kosti aðra leið. Félaginn greiðir þá aðeins skatta og gjöld. Vinamiði er Vildarfargjald.
Þegar meðlimur kaupir sér Vildarmiða á hann rétt á samskonar miða fyrir ferðafélaga í sama flug. Korthafinn getur leyft hverjum sem er að nýta Vinamiðann en verður sjálfur að vera að ferðast á Vildarmiða.
Viljir þú breyta Vinamiðanum þínum í 50.000 Vildarpunkta þá getur þú gert það hér, ef að þú hefur fengið Vinamiða eftir 1. febrúar 2019.